9.2.2010 | 11:01
Molbúar á Íslandi!
Komið sæl og blessuð
Ætti ég að byrja að skrifa aftur hér á þessari síðu? Sennilega allir hættir að kíkja inn á síðuna þar sem ég hef ekki skrifað síðan í maí á síðasta ári.
En mig langar stundum að skrifa einhversstaðar bara til að létta á mér :0) held nefnilega stundum að fólk sé fífl. Ja, við vitum að fólk er stundum fífl en stundum er fólk bara aðeins meira fífl en ekki.
Ég er eins og flestir vita frekar jákvæð manneskja sem vil heldur sjá glasið hálf fullt en hálf tómt. Ég reyni að sjá það besta í hverjum einstaklingi og trúi því staðfastlega að allir hafi eitthvað jákvætt og gott í sér. Ég trúi því líka að til þess að fá hluti þá þurfi maður einnig að gefa. Það skiptir í raun ekki máli hvað maður gefur, t.d. getur maður gefið bros (sem ég er óspör á), maður getur gefið peninga (með því að kaupa t.d. eitthvað til styrktar einhverju eða bara styrkja einhvern/eitthvað, tek það fram að ég þyrfti að vera duglegri við þetta), svo getur maður líka gefið notuð föt eða aðra húsmuni (sem ég er líka óspör á).
Ástæðan fyrir að ég skrifa þetta hér að ofan? Jú, hún er einföld. Sumir sem eiga meira og þykjast eiga enn meira en þeir eiga (taka eða hafa tekið það sem þeim ber/bar ekki að taka), taka bara endalaust. Ég er alveg sannfærð um að þeir sem efnuðust óhóflega í góðærinu er allt gott fólk og yndislegt, það leikur enginn vafi á því í mínum huga. En það er hinsvegar smá efi í mínu hjarta að það sé bara farið af landi brott með allt sitt hafurtask. Fólk féll í gryfju græðginar og gat ekki hætt og svo þegar allt féll þá flúðu flestir af landi brott, með ágóða góðærisins og lifa ágætu lífi ... allavega miðað við marga hér á Íslandi í dag.
Við ... almúginn sem eigum eða áttum ekki mikið en lifðum þó prýðisgóðu lífi (við sem gátum borgað reikningana okkar og kannski leyft okkur að kaupa harðfisk annan hvern mánuð) og það erum við sem borgum. Mér er engin vorkunn að borga reikninga en ég vil heldur borga reikninga sem ég hef stofnað til. Ef ég ætti nýjan bíl og flatskjá, þá gæti ég horft á skjáinn og út um gluggann á bílinn minn (hefði örugglega ekki efni á því að keyra hann, sökum rosalegs bensínverðs ahahah) og farið svo og borgað summuna. En nei, ég á ekki þetta fína og flotta dót til að horfa á en ég borga samt :0)
Hætt í bili :0) þetta er að verða of mikið væl hjá mér :0)
Hilsen
Jóa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)



