30.3.2009 | 08:10
Breyttir tímar
Komið sæl og blessuð
Ég ... ásamt hinum í DK misstum heilann klukkutíma ... bara rétt sísvona í gær. Fyndið að fara að sofa kl. 00 og vakna ekki fyrr en kl. 10 en sofa samt "bara" í níu klukkutíma :0) en svona er þetta, þeir vilja nýta daginn betur sem er bara rétt :0)
Síðustu dagar hafa verið alveg ágætir hér í "Slömminu", fór á djammið á föstudagskvöldið ... sambýlingurinn minn átti afmæli. Fórum út að borða á Jenses bøfhus sem var bara fínt, fórum einnig í Keilu, hnmmmmm eins og fjölskyldan mín veit þá er ég ekkert sérlega góð í Keilu en hey ég var ekki lægst ahahahahahha. Ég hitti reyndar ekki alltaf keilurnar en það er nú önnur saga ... maður getur hreinlega ekki verið bestur í öllu hahahahahahha þetta var djók.
Fór með systur og þeim yngri á fatamarkaði í gær. Kristján minn kæri er ekki mikið fyrir svona troðning og læti eins og verður gjarnan inni á svona stöðum. Vildi bara vera úti og ég var ekkert smá ánægð með hann :0) þá hafði ég afsökun og gat verið úti líka :0) Það er alveg ótrúlegt hversu mikið fólk missir sig á svona stöðum. Ég verð nú eiginlega að taka það fram (eða þarf ég þess?) að konur eru mikið verri en karlar enda voru nú ansi fáir karlar að gramsa í barnafötunum. Það er eins og það renni á kerlurnar einhver móður, þær gramsa og ýta, troðast og kafa í kassana. Ég veit vissulega að það getur sparað mörgum aurinn að fara á svona markaði en ó mæ ó mæ.
Ferlega fyndið á fyrri markaðnum, ég og Kristján vorum úti í svona glimrandi veðri, hita og sól. Kristján var vopnaður fyrstu byssunni sem hann eignast, mini Uzi :0) gangandi um og týnandi steina til að hafa með heim og ekki má gleyma því að hann reglulega leitaði að fuglum til að skjóta (það má nefnilega skjóta fugla ekki fólk). Svo var hann raulandi lagstúfa við þessa iðju sína. Tveir drengstaular, örugglega í kringum 15-16 ára komu og settust á næsta bekk við mig, þeir fylgdust grant með Kristjáni og brostu breitt og hlógu þegar hann tók á sprettinn og ætlaði að skjóta fugla, þeir höfðu greinilega gaman af því að fylgjast með honum. Það fór eiginlega um mig sæluhrollur, það var eins og ég hélt, unglingar eru snillingar ahahhahahahhaha
Er byrjuð að viða að mér efni fyrir ritgerðina í Angst. Ég vona að ég megi gera um þetta efni sem ég hef nú þegar valið mér ... það væri samt eftir því að þeir færu að fetta fingur út í að ég væri ekki að taka kvíða beint heldur Mindfulness, unglinga og hegðunarörðugleika (eiginlega bæði innri og ytri örðugleika sem hrjá margan unglinginn). Gærdagurinn fór í að viða að sér heimildum, á samt eftir að fara á bókasafnið og ná mér í bækur. Ætla að taka frá a.m.k. 4 klst á dag heima og skrifa og lesa og það allt. Já, já hlægið bara, ég sé hvað ég geri :0) vissulega hafa heimferðirnar ekki snúist mikið um lestur eða annan lærdóm :0)
Já, ég kem heim ekki á morgun, ekki hinn heldur hinn. Þessi tími hefur verið ótrúlega fljótur að líða en samt langt síðan ég sá fólkið mitt. Ótrúlegt hvað þetta getur verið skrýtið, langt en samt stutt, stutt en samt langt :0) Minn heittelskaði ákvað að koma bara suður og ná í mig, það er ótrúlegur munur. Hann hefur að ég held bara einu sinni komið sér ferð suður til að ná í mig og mér fannst ég vera komin heim :0) bara þarna á flugvellinum, bara við það eitt að sjá manninn minn :0) fyndið.
Jæja, nú ætla ég að girða í brók og hefja lestur, ja allavega svona á milli þess að ég tek úr vélinni og set í aðra. Hef ekki þvegið í meira en viku og get varla komið með alla garmana óhreina heim á klakann :0)
Hilsen heim
Jóa
p.s. hér er sólin farin að skína og alla vega 10° ... já í plús :0)



Athugasemdir
Það verður hressandi fyrir þig að komast úr mollunni heim í snjóinn :o)
María (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 08:51
nei Jóa mín, ég held að ég hafi séð um að vera lægst! hahahah.. það fóru þarna nokkrar í rennuna.. úbbósí.. en ég meina, einhver verður að taka það að sér!
Anný (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 09:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.