16.4.2009 | 09:01
Komin aftur til DK og allt að fara á fullt
Komið sæl og blessuð
Ég er nú loksins að setja niður nokkur orð ... orðið frekar langt síðan ég leit á þetta en biðin nú á enda. Ég er komin "heim" á Janusargötuna, páskafríið geystist áfram eins og eldur í sinu ... eitthvað sem ég bað ekki um :0) ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða þegar það er gaman og nóg að gera.
Eins og flestir vissu opnaði ég ekki bók í fríinu ... nú lýg ég aðeins eða í það minnsta skreyti örlítið því ég opnaði einu sinni möppuna með greinunum sem ég ætlaði að lesa. Fékk svo heimsókn og lokaði henni fljótlega. Þannig að nú er tekinn við tími enn meiri lesturs og undirbúnings fyrir ritgerðina sem ég ætlaði að vera byrjuð á fyrir næstum mánuði. Ég er orðin þokkalega stressuð fyrir prófið, ég tek eitt próf, ætla að láta pædo dótið bíða þar til á næstu önn og skrifa svo eina ritgerð sem ég hlakka mikið til að skrifa.
Ég er ekki nægilega góð í þessum prófum hér í Danaveldi, er sennilega of fræðileg eða ég vona allavega að það sé vandamálið hahahahaha. Þannig að nú verður haldið öðruvísi á tölvunni ... ætla að skrifa upp í rúmi núna en ekki við skrifborðið hahahahahah en það kemur allt í ljós hvernig þetta fer.
Átti í smá brasi með LÍN, fékk ekki þá upphæð sem ég átti að fá núna í febrúar. Fékk frekar asnalegt viðmót þegar ég hringdi þangað. Blessuð konan gat bara ekkert fyrir mig gert ... bauð mér reyndar meðlagslán!!!!! Hmmmm ég kannaðist nú ekki við að ég væri einstæð eða þar að segja að ég hefði afsalað mér forræði barna minna hahahhaha þetta er fyndið núna en var svo sannarlega ekkert fyndið þegar ég var að tala við manneskjuna og sannarlega ekki rétt á eftir. Fékk að vita að ég gæti reynt að skrifa tölvupóst til stjórnarinnar en það þýddi nú sennilega ekki neitt þar sem ekkert væri hægt að gera fyrir mig! En ég ákvað samt sem áður að "miði" væri möguleiki og skrifaði bréf. Þar spurði ég t.d. að ef ég ætlaði að vera áfram í námi þá væri best fyrir mig að skilja við manninn minn og hvort það tíðkaðist að ef móðir hefði ekki sama lögheimili og börn hennar þá þyrfti hún ekki að hafa neinar áhyggjur af þeim frekar, æ ég var frekar pirruð. Sendi póstinn kl. 13:00 og var búin að fá svar kl. 14:56. Sem er betri þjónusta en á mörgum stöðum. Þar kom í ljós að þegar gögn Hagstofunnar höfðu verið borin saman við gögn LÍN þá var ég ekki lengur gift og átti engin börn! Frekar fyndið ... já svona eftirá. Ég og minn heittelskaði maður erum nefnilega gift en ekki í samvistum hahahaha og það er í rauninni ekki til hjá neinni stofnun, þ.e. það er lesið (sennilega af tölvum) sem slit á samvistum eða skilnaður, hinsvegar varpar þetta ekki ljósi á það að ég átti skyndilega ekki nein börn. Reyndar er hún dóttir mín orðin 19 ára núna og orðin fullorðin hahahah
En nóg um það. Hér á Janusargötunni er lífið næstum orðið venjulegt aftur. Vantar reyndar sambýliskonuna, hún kemur á sunnudag og því er frekar tómlegt hér í slömminu :0) og tíminn notaður nær eingöngu til að lesa og jú reyndar að skjótast á face-ið (tímaþjóf dauðans). Vorið ákvað að koma aðeins aftur (var í fullum blóma þegar ég var á Íslandi) og sólargeislarnir dansa inn um svalahurðina mína nýju. Ég er ekki frá því að það sé verið að reyna að lokka mig út ... eða ég kýs að trúa því :0)
Jæja, nú verð ég að snúa mér aftur að skemmtiatriðinu, félagsfælni og kvíðaköst!
Hilsen heim á klakann (reyndar víst gott veður þar núna ... ekki svo mikill klaki)
Jóa



Athugasemdir
Hér er nú bara spáð tveggja stafa tölu fram á sunnudag sko!
Díana (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 09:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.