7.5.2009 | 07:42
Lífið á Læk
Heil og sæl
Er að reyna að manna mig upp í að halda áfram að skrifa ritgerð. Er að skrifa um mindfulness (gjörhygli, get einhvern veginn ekki sætt mig við þessa íslensku þýðingu) og unglinga eða meira svona hvernig mindfulness hefur verið aðlagað að þörfum barna en þó aðallega unglinga. Ferlega skemmtilegt en samt pínku pirrandi því það hefur ekki verið gerðar svo margar rannsóknir á mindfulness og unglingum. Jæja en nóg um það.
Hér byrjaði vorið með ágætum eins og flestir vita :0) hinsvegar ákváðu veðurguðirnir að taka upp íslenskt sumarveður hér í Möggulandi, hér er rok en samt um 14° eiginlega bara kalt hahaha. Sem er í raun og veru fínt þegar verið er að skrifa ritgerðir og taka próf. En samt fúlt að geta ekki notað þessar frábæru svalir sem voru bara settar niður fyrir mig og sambýliskonuna hahahahah.
Ég hef undanfarið verið að hjóla eins og mófó, sem er bara gott í sjálfu sér, er að hjóla þetta 20 km í kappi við klukkuna og aðra reiðhjólamenn sem hafa ekki hugmynd um að þeir séu í æsispennandi keppni. Ég svoleiðis tek fram úr eldri frúnum með innkaupapokana á leið heim og hér skal klárlega tekið fram að ég tel ekki með þegar racerarnir eru að taka fram úr mér. Þetta eru þvengmjóir danir sem hafa ekkert annað að gera en að hjóla, hjóla á reiðhjólum sem vega ekki meira en annað brjóstið á mér og eru sko með miklu fleiri gírum en mitt hjól, ennnnn ég er samt alltaf sigurvegarinn :0). Minn eðal Grámann (reiðhjólið mitt) er sko stálfákur, sjö gíra og ákaflega traustur ... ekki eins og þessi bréfhjól sem gaurarnir eru á, reyndar verður að viðurkennast að framljósið flotta er bilað, gæti kostað mig mikið fé ef ég fer ekki og læt laga það, heilar 500,- danskar sem eru hvorki meira né minna en 11.346,- íslenskar. Einnig verð ég að viðurkenna að ég þarf að fara að skipta um afturdekk, ég er búin að reykspóla svo svakalega að það er hreinlega að verða búið. Fór með hjólið mitt í tjékk ... það gera flestir danir á vorin (ég er að verða svoooo dönsk), reiðhjólaviðgerðarkarlinn minn var ánægður með mig ... og hjólið, smurði gírana og skipti um og herti upp frambremsuna (sem ég kláraði einn góðan vordag á leið niður brekkuna ... reiðhjólamaður snarbremsaði fyrir framan mig og ég þurfti að bremsa bæði að aftan og framan, munaði litlu að ég færi í körfuna á hjólinu hans).
En aðeins meira um veðrið og hjólið. Málið er að ég hjóla mest á reiðhjóla og göngustíg sem nefnist Brabrandstien, rosalega fallegt þarna en það skiptist á skógur og ekki skógur, aðallega þó ekki skógur (þar nefnilega er ekki svo mikill vindur). Þegar svo mikið rok er eins og hefur verið undanfarið, þá er eins og vindstrengur haldi sig á stígnum alla leiðina. Í gær var svo rosalegt rok að ég mátti hafa mig alla við að halda mig í fyrsta lagi á hjólinu og í öðru lagi að halda mér og hjólinu á stígnum. Já, já ég veit að ég tek svolítinn vind á mig hahahah. Ég var komin niður í annan gír við að berjast á móti, mátti hafa mig alla við að komast fram úr þessari gömlu (sem er örugglega fertug hahahahaha) sem fór ekki hraðar yfir en skjaldbaka á svefnlyfi. Var að hugsa um að snúa við þegar ég var komin hálfa leiðina en hugsaði með mér að ekki væri það nú gott til afspurnar. Ég er nefnilega búin að tala við einkaþjálfa, ætla að skella mér í svoleiðis í sumar :0) sagði honum að ég hjólaði yfirleitt um 20 km á hverjum degi hahahha þannig að ég verð þokkalega að halda því við. Hann gæti annars hankað mig á því þegar heim verður komið :0) ég sagði honum nefnilega líka að ég yrði að hafa hörku í þessu, annars myndi ekkert gerast ... hann lofaði hörku og því eins gott að undirbúa sig undir það.
Jæja, nú er þetta að verða ágætis ritgerð ... reyndar á ég eftir að segja frá atburðum næturinnar :0) Vaknaði upp við að sambýliskonan stóð í hurðinni hjá mér og sagði: "Heyrðir þú þetta?" haaaaaaa, hvað? hahahahah einhver illi var að reyna að opna hurðina með lykli, svo heyrðist víst skellt hurðinni hér við hliðina á okkur. Vá hvað hann hefur verið steiktur nágranninn okkar þegar hann var að koma sér heim kl. 04:36 í nótt.
Jæja, nú ætla ég að hætta, komin í gírinn fyrir ritgerðina. Væri ágætt ef ég gæti bara skrifað bók um svaðilfarir mínar í strætisvögnum borgarinnar sem lokaverkefni í angstinu (það klárlega gæti tengst verulega vel), Ég gæti verið kominn með svakalega mikinn kvíða í tengslum við strætisvagna, ég ætti kannski að senda kennurunum tölvupóst ahhahahahaha Þakka þér fyrir Guðríður að koma með svona góða hugmynd að skrifum. Jón minn kæri, þú verður algerlega að koma aðeins yfir áður en ég fer heim, ég fer heim 14. júní. Sakna þín mikið og ætla að spæja upp númerið þitt í Norge hahaha
Over and out og hafið það nú gott og verið góð hvort við annað (er smá smituð af Dýrunum í Hálsaskógi, það er uppáhaldssjónvarpsefni frænda).
Jóa (sem er að upplitast eftir að hafa náð góðri brúnku á nokkrum dögum :0)



Athugasemdir
Hæ Jóa.
Frábært hvað þú ert dugleg að hjóla. Að lesa pistilinn frá þér fékk mig til að fara út að hjóla í kuldanum hér í dag (veðrið ömurlegt) það er bara dásamlegt að fá vindinn í andlitið.
takk fyrir innblasturinn og gangi þér vel með ritgerðina.
kveðja úr hríðinni að norðan frá landinu kalda.
gudda (IP-tala skráð) 9.5.2009 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.