Komið þið sæl og blessuð
Það urðu einhver mistök í gær, mjög leið mistök. Ég fékk ekki Víkingalottóið :0) það hlýtur að hafa farið á góðan stað fyrst ég fékk það ekki hahahaha Ég ætlaði að klára húsið mitt ... en ég geri það samt ... bara í næsta mánuði! :0) það kemur alltaf dagur eftir þennan dag, vika eftir þessa viku og mánuður eftir þennan mánuð
Ég labbaði í "vinnuna" svona eins og ég hef verið að gera. Var hrikalega heppin, steig ekki í ælupollinn við hliðina á útidyrahurðinni í "vinnunni", sá hann ekki fyrr en ég læddist út til að fá mér frískt loft. Fór aðeins í að efnagreina, einstaklingurinn hefur sennilega verið að borða pizzu með lauk! Alveg hreint dásamlegt hvað ég lendi í mörgu skemmtilegu á hverjum degi :0)
Hinsvegar var óvenjulega góð lykt í húsinu þegar ég kom inn. Þessi líka svakalega þrifnaðarlykt gaus á móti mér ... gerði það næstum að verkum að ég snéri við og færi heim að þrífa. Ég ákvað svo að bíða aðeins þar til sú hugmynd færi aftur til föðurhúsana :0) ... það tókst, hún hvarf :0)
Ætla að skrifa lítið í dag, ætla hinsvegar að fara í klippingu, ekki sjón orðið að sjá mig eða kannski meira svona, þvílík sjón að sjá mig :0)
Hilsen
Jóan
Komið þið sæl og blessuð!
Var að velta fyrir mér á leiðinni í "vinnuna" í morgun, hversu frábært það væri ef allir væru eins og einn ákveðinn einstaklingur hér í Akureyrarbæ. Hann er mikið á ferðinni, labbar bæinn endana á milli, hefur meðferðis poka og týnir upp allt rusl sem á vegi hans verður. Þetta er snillingur sem bærinn ætti að verðlauna. Kannski er hann ekki eins og fólk er flest (eins og sumir segja), held að hann sé bara enn betri :0) þroskaheftur eða ekki, það skiptir ekki máli, hann á skilið að fá verðlaun ... og við hin, við eigum skilið að fá skömm í hattinn!
Yfir og út
Jóan
Komið sæl og blessuð
Ætti ég að byrja að skrifa aftur hér á þessari síðu? Sennilega allir hættir að kíkja inn á síðuna þar sem ég hef ekki skrifað síðan í maí á síðasta ári.
En mig langar stundum að skrifa einhversstaðar bara til að létta á mér :0) held nefnilega stundum að fólk sé fífl. Ja, við vitum að fólk er stundum fífl en stundum er fólk bara aðeins meira fífl en ekki.
Ég er eins og flestir vita frekar jákvæð manneskja sem vil heldur sjá glasið hálf fullt en hálf tómt. Ég reyni að sjá það besta í hverjum einstaklingi og trúi því staðfastlega að allir hafi eitthvað jákvætt og gott í sér. Ég trúi því líka að til þess að fá hluti þá þurfi maður einnig að gefa. Það skiptir í raun ekki máli hvað maður gefur, t.d. getur maður gefið bros (sem ég er óspör á), maður getur gefið peninga (með því að kaupa t.d. eitthvað til styrktar einhverju eða bara styrkja einhvern/eitthvað, tek það fram að ég þyrfti að vera duglegri við þetta), svo getur maður líka gefið notuð föt eða aðra húsmuni (sem ég er líka óspör á).
Ástæðan fyrir að ég skrifa þetta hér að ofan? Jú, hún er einföld. Sumir sem eiga meira og þykjast eiga enn meira en þeir eiga (taka eða hafa tekið það sem þeim ber/bar ekki að taka), taka bara endalaust. Ég er alveg sannfærð um að þeir sem efnuðust óhóflega í góðærinu er allt gott fólk og yndislegt, það leikur enginn vafi á því í mínum huga. En það er hinsvegar smá efi í mínu hjarta að það sé bara farið af landi brott með allt sitt hafurtask. Fólk féll í gryfju græðginar og gat ekki hætt og svo þegar allt féll þá flúðu flestir af landi brott, með ágóða góðærisins og lifa ágætu lífi ... allavega miðað við marga hér á Íslandi í dag.
Við ... almúginn sem eigum eða áttum ekki mikið en lifðum þó prýðisgóðu lífi (við sem gátum borgað reikningana okkar og kannski leyft okkur að kaupa harðfisk annan hvern mánuð) og það erum við sem borgum. Mér er engin vorkunn að borga reikninga en ég vil heldur borga reikninga sem ég hef stofnað til. Ef ég ætti nýjan bíl og flatskjá, þá gæti ég horft á skjáinn og út um gluggann á bílinn minn (hefði örugglega ekki efni á því að keyra hann, sökum rosalegs bensínverðs ahahah) og farið svo og borgað summuna. En nei, ég á ekki þetta fína og flotta dót til að horfa á en ég borga samt :0)
Hætt í bili :0) þetta er að verða of mikið væl hjá mér :0)
Hilsen
Jóa
Heil og sæl
Er að reyna að manna mig upp í að halda áfram að skrifa ritgerð. Er að skrifa um mindfulness (gjörhygli, get einhvern veginn ekki sætt mig við þessa íslensku þýðingu) og unglinga eða meira svona hvernig mindfulness hefur verið aðlagað að þörfum barna en þó aðallega unglinga. Ferlega skemmtilegt en samt pínku pirrandi því það hefur ekki verið gerðar svo margar rannsóknir á mindfulness og unglingum. Jæja en nóg um það.
Hér byrjaði vorið með ágætum eins og flestir vita :0) hinsvegar ákváðu veðurguðirnir að taka upp íslenskt sumarveður hér í Möggulandi, hér er rok en samt um 14° eiginlega bara kalt hahaha. Sem er í raun og veru fínt þegar verið er að skrifa ritgerðir og taka próf. En samt fúlt að geta ekki notað þessar frábæru svalir sem voru bara settar niður fyrir mig og sambýliskonuna hahahahah.
Ég hef undanfarið verið að hjóla eins og mófó, sem er bara gott í sjálfu sér, er að hjóla þetta 20 km í kappi við klukkuna og aðra reiðhjólamenn sem hafa ekki hugmynd um að þeir séu í æsispennandi keppni. Ég svoleiðis tek fram úr eldri frúnum með innkaupapokana á leið heim og hér skal klárlega tekið fram að ég tel ekki með þegar racerarnir eru að taka fram úr mér. Þetta eru þvengmjóir danir sem hafa ekkert annað að gera en að hjóla, hjóla á reiðhjólum sem vega ekki meira en annað brjóstið á mér og eru sko með miklu fleiri gírum en mitt hjól, ennnnn ég er samt alltaf sigurvegarinn :0).  Minn eðal Grámann (reiðhjólið mitt) er sko stálfákur, sjö gíra og ákaflega traustur ... ekki eins og þessi bréfhjól sem gaurarnir eru á, reyndar verður að viðurkennast að framljósið flotta er bilað, gæti kostað mig mikið fé ef ég fer ekki og læt laga það, heilar 500,- danskar sem eru hvorki meira né minna en 11.346,- íslenskar. Einnig verð ég að viðurkenna að ég þarf að fara að skipta um afturdekk, ég er búin að reykspóla svo svakalega að það er hreinlega að verða búið. Fór með hjólið mitt í tjékk ... það gera flestir danir á vorin (ég er að verða svoooo dönsk), reiðhjólaviðgerðarkarlinn minn var ánægður með mig ... og hjólið, smurði gírana og skipti um og herti upp frambremsuna (sem ég kláraði einn góðan vordag á leið niður brekkuna ... reiðhjólamaður snarbremsaði fyrir framan mig og ég þurfti að bremsa bæði að aftan og framan, munaði litlu að ég færi í körfuna á hjólinu hans).
En aðeins meira um veðrið og hjólið. Málið er að ég hjóla mest á reiðhjóla og göngustíg sem nefnist Brabrandstien, rosalega fallegt þarna en það skiptist á skógur og ekki skógur, aðallega þó ekki skógur (þar nefnilega er ekki svo mikill vindur). Þegar svo mikið rok er eins og hefur verið undanfarið, þá er eins og vindstrengur haldi sig á stígnum alla leiðina. Í gær var svo rosalegt rok að ég mátti hafa mig alla við að halda mig í fyrsta lagi á hjólinu og í öðru lagi að halda mér og hjólinu á stígnum. Já, já ég veit að ég tek svolítinn vind á mig hahahah. Ég var komin niður í annan gír við að berjast á móti, mátti hafa mig alla við að komast fram úr þessari gömlu (sem er örugglega fertug hahahahaha) sem fór ekki hraðar yfir en skjaldbaka á svefnlyfi. Var að hugsa um að snúa við þegar ég var komin hálfa leiðina en hugsaði með mér að ekki væri það nú gott til afspurnar. Ég er nefnilega búin að tala við einkaþjálfa, ætla að skella mér í svoleiðis í sumar :0) sagði honum að ég hjólaði yfirleitt um 20 km á hverjum degi hahahha þannig að ég verð þokkalega að halda því við. Hann gæti annars hankað mig á því þegar heim verður komið :0)  ég sagði honum nefnilega líka að ég yrði að hafa hörku í þessu, annars myndi ekkert gerast ... hann lofaði hörku og því eins gott að undirbúa sig undir það.
Jæja, nú er þetta að verða ágætis ritgerð ... reyndar á ég eftir að segja frá atburðum næturinnar :0) Vaknaði upp við að sambýliskonan stóð í hurðinni hjá mér og sagði: "Heyrðir þú þetta?" haaaaaaa, hvað? hahahahah einhver illi var að reyna að opna hurðina með lykli, svo heyrðist víst skellt hurðinni hér við hliðina á okkur. Vá hvað hann hefur verið steiktur nágranninn okkar þegar hann var að koma sér heim kl. 04:36 í nótt.
Jæja, nú ætla ég að hætta, komin í gírinn fyrir ritgerðina. Væri ágætt ef ég gæti bara skrifað bók um svaðilfarir mínar í strætisvögnum borgarinnar sem lokaverkefni í angstinu (það klárlega gæti tengst verulega vel), Ég gæti verið kominn með svakalega mikinn kvíða í tengslum við strætisvagna, ég ætti kannski að senda kennurunum tölvupóst ahhahahahaha Þakka þér fyrir Guðríður að koma með svona góða hugmynd að skrifum. Jón minn kæri, þú verður algerlega að koma aðeins yfir áður en ég fer heim, ég fer heim 14. júní. Sakna þín mikið og ætla að spæja upp númerið þitt í Norge hahaha
Over and out og hafið það nú gott og verið góð hvort við annað (er smá smituð af Dýrunum í Hálsaskógi, það er uppáhaldssjónvarpsefni frænda).
Jóa (sem er að upplitast eftir að hafa náð góðri brúnku á nokkrum dögum :0)
Já komið sæl og blessuð
Enn af mér og strætó ... var í strætó í gær, skrapp ásamt Hafdísi í Bilka, það var allt tíðindalaust á leiðinni í Bilka en ótrúlegt en satt dró til tíðinda á leiðinni heim. Strætóinn lenti í árekstri hahahahaha jamms í annað sinnið sem ég lendi í árekstri í strætó hér í Árósum. Hafdís lenti næstum í fanginu á slæðukonu og ég í fanginu á dreng sem varla stóð út úr hnefa ... getið ímyndað ykkur hvernig hann hefði litið út á eftir :0) en strætóinn hélt áfram þar til hann gat stöðvað á tiltölulega rólegum stað (þarna eru þvílíkar umferðartafir vegna viðgerðar á götu) þegar við keyrðum áfram sá ég framan í nokkra ökumenn sem voru skellihlægjandi! Hefur sennilega verið ferlega fyndið að sjá fullan strætó af fólki hendast á næstu farþega ... ja allavega þar sem þetta var ekki stórvægilegur árekstur :0)
Jæja, nú er allt komið á fullt í lærdómi ... eins og það hafi svo sem ekki verið fyrir :0) en kvíðinn fyrir vinnusálfræðiprófinu er líka kominn á fullt :0) þannig að ég verð að girða í brók og vera dugleg að klára ritgerðina í kvíðanum sem fyrst og fara svo á fullu í undirbúning fyrir Vinnusálfræðina
Jæja, nú ætla ég ekki að hafa þetta lengra, varð bara hreinlega að deila þessu með ykkur í sambandi við strætóinn :0)
Komið sæl og blessuð
Ég er nú loksins að setja niður nokkur orð ... orðið frekar langt síðan ég leit á þetta en biðin nú á enda. Ég er komin "heim" á Janusargötuna, páskafríið geystist áfram eins og eldur í sinu ... eitthvað sem ég bað ekki um :0) ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða þegar það er gaman og nóg að gera.
Eins og flestir vissu opnaði ég ekki bók í fríinu ... nú lýg ég aðeins eða í það minnsta skreyti örlítið því ég opnaði einu sinni möppuna með greinunum sem ég ætlaði að lesa. Fékk svo heimsókn og lokaði henni fljótlega. Þannig að nú er tekinn við tími enn meiri lesturs og undirbúnings fyrir ritgerðina sem ég ætlaði að vera byrjuð á fyrir næstum mánuði. Ég er orðin þokkalega stressuð fyrir prófið, ég tek eitt próf, ætla að láta pædo dótið bíða þar til á næstu önn og skrifa svo eina ritgerð sem ég hlakka mikið til að skrifa.
Ég er ekki nægilega góð í þessum prófum hér í Danaveldi, er sennilega of fræðileg eða ég vona allavega að það sé vandamálið hahahahaha. Þannig að nú verður haldið öðruvísi á tölvunni ... ætla að skrifa upp í rúmi núna en ekki við skrifborðið hahahahahah en það kemur allt í ljós hvernig þetta fer.
Átti í smá brasi með LÍN, fékk ekki þá upphæð sem ég átti að fá núna í febrúar. Fékk frekar asnalegt viðmót þegar ég hringdi þangað. Blessuð konan gat bara ekkert fyrir mig gert ... bauð mér reyndar meðlagslán!!!!! Hmmmm ég kannaðist nú ekki við að ég væri einstæð eða þar að segja að ég hefði afsalað mér forræði barna minna hahahhaha þetta er fyndið núna en var svo sannarlega ekkert fyndið þegar ég var að tala við manneskjuna og sannarlega ekki rétt á eftir. Fékk að vita að ég gæti reynt að skrifa tölvupóst til stjórnarinnar en það þýddi nú sennilega ekki neitt þar sem ekkert væri hægt að gera fyrir mig! En ég ákvað samt sem áður að "miði" væri möguleiki og skrifaði bréf. Þar spurði ég t.d. að ef ég ætlaði að vera áfram í námi þá væri best fyrir mig að skilja við manninn minn og hvort það tíðkaðist að ef móðir hefði ekki sama lögheimili og börn hennar þá þyrfti hún ekki að hafa neinar áhyggjur af þeim frekar, æ ég var frekar pirruð. Sendi póstinn kl. 13:00 og var búin að fá svar kl. 14:56. Sem er betri þjónusta en á mörgum stöðum. Þar kom í ljós að þegar gögn Hagstofunnar höfðu verið borin saman við gögn LÍN þá var ég ekki lengur gift og átti engin börn! Frekar fyndið ... já svona eftirá. Ég og minn heittelskaði maður erum nefnilega gift en ekki í samvistum hahahaha og það er í rauninni ekki til hjá neinni stofnun, þ.e. það er lesið (sennilega af tölvum) sem slit á samvistum eða skilnaður, hinsvegar varpar þetta ekki ljósi á það að ég átti skyndilega ekki nein börn. Reyndar er hún dóttir mín orðin 19 ára núna og orðin fullorðin hahahah
En nóg um það. Hér á Janusargötunni er lífið næstum orðið venjulegt aftur. Vantar reyndar sambýliskonuna, hún kemur á sunnudag og því er frekar tómlegt hér í slömminu :0) og tíminn notaður nær eingöngu til að lesa og jú reyndar að skjótast á face-ið (tímaþjóf dauðans). Vorið ákvað að koma aðeins aftur (var í fullum blóma þegar ég var á Íslandi) og sólargeislarnir dansa inn um svalahurðina mína nýju. Ég er ekki frá því að það sé verið að reyna að lokka mig út ... eða ég kýs að trúa því :0)
Jæja, nú verð ég að snúa mér aftur að skemmtiatriðinu, félagsfælni og kvíðaköst!
Hilsen heim á klakann (reyndar víst gott veður þar núna ... ekki svo mikill klaki)
Jóa
Komið sæl og blessuð
Ég ... ásamt hinum í DK misstum heilann klukkutíma ... bara rétt sísvona í gær. Fyndið að fara að sofa kl. 00 og vakna ekki fyrr en kl. 10 en sofa samt "bara" í níu klukkutíma :0) en svona er þetta, þeir vilja nýta daginn betur sem er bara rétt :0)
Síðustu dagar hafa verið alveg ágætir hér í "Slömminu", fór á djammið á föstudagskvöldið ... sambýlingurinn minn átti afmæli. Fórum út að borða á Jenses bøfhus sem var bara fínt, fórum einnig í Keilu, hnmmmmm eins og fjölskyldan mín veit þá er ég ekkert sérlega góð í Keilu en hey ég var ekki lægst ahahahahahha. Ég hitti reyndar ekki alltaf keilurnar en það er nú önnur saga ... maður getur hreinlega ekki verið bestur í öllu hahahahahahha þetta var djók.
Fór með systur og þeim yngri á fatamarkaði í gær. Kristján minn kæri er ekki mikið fyrir svona troðning og læti eins og verður gjarnan inni á svona stöðum. Vildi bara vera úti og ég var ekkert smá ánægð með hann :0) þá hafði ég afsökun og gat verið úti líka :0) Það er alveg ótrúlegt hversu mikið fólk missir sig á svona stöðum. Ég verð nú eiginlega að taka það fram (eða þarf ég þess?) að konur eru mikið verri en karlar enda voru nú ansi fáir karlar að gramsa í barnafötunum. Það er eins og það renni á kerlurnar einhver móður, þær gramsa og ýta, troðast og kafa í kassana. Ég veit vissulega að það getur sparað mörgum aurinn að fara á svona markaði en ó mæ ó mæ.
Ferlega fyndið á fyrri markaðnum, ég og Kristján vorum úti í svona glimrandi veðri, hita og sól. Kristján var vopnaður fyrstu byssunni sem hann eignast, mini Uzi :0) gangandi um og týnandi steina til að hafa með heim og ekki má gleyma því að hann reglulega leitaði að fuglum til að skjóta (það má nefnilega skjóta fugla ekki fólk). Svo var hann raulandi lagstúfa við þessa iðju sína. Tveir drengstaular, örugglega í kringum 15-16 ára komu og settust á næsta bekk við mig, þeir fylgdust grant með Kristjáni og brostu breitt og hlógu þegar hann tók á sprettinn og ætlaði  að skjóta fugla, þeir höfðu greinilega gaman af því að fylgjast með honum. Það fór eiginlega um mig sæluhrollur, það var eins og ég hélt, unglingar eru snillingar ahahhahahahhaha
Er byrjuð að viða að mér efni fyrir ritgerðina í Angst. Ég vona að ég megi gera um þetta efni sem ég hef nú þegar valið mér ... það væri samt eftir því að þeir færu að fetta fingur út í að ég væri ekki að taka kvíða beint heldur Mindfulness, unglinga og hegðunarörðugleika (eiginlega bæði innri og ytri örðugleika sem hrjá margan unglinginn). Gærdagurinn fór í að viða að sér heimildum, á samt eftir að fara á bókasafnið og ná mér í bækur. Ætla að taka frá a.m.k. 4 klst á dag heima og skrifa og lesa og það allt. Já, já hlægið bara, ég sé hvað ég geri :0) vissulega hafa heimferðirnar ekki snúist mikið um lestur eða annan lærdóm :0)
Já, ég kem heim ekki á morgun, ekki hinn heldur hinn. Þessi tími hefur verið ótrúlega fljótur að líða en samt langt síðan ég sá fólkið mitt. Ótrúlegt hvað þetta getur verið skrýtið, langt en samt stutt, stutt en samt langt :0) Minn heittelskaði ákvað að koma bara suður og ná í mig, það er ótrúlegur munur. Hann hefur að ég held bara einu sinni komið sér ferð suður til að ná í mig og mér fannst ég vera komin heim :0) bara þarna á flugvellinum, bara við það eitt að sjá manninn minn :0) fyndið.
Jæja, nú ætla ég að girða í brók og hefja lestur, ja allavega svona á milli þess að ég tek úr vélinni og set í aðra. Hef ekki þvegið í meira en viku og get varla komið með alla garmana óhreina heim á klakann :0)
Hilsen heim
Jóa
p.s. hér er sólin farin að skína og alla vega 10° ... já í plús :0)
Sæl öll sömul
Alveg ótrúlegt að það sé aftur og enn kominn föstudagur. Ekki nema 6 dagar þangað til ég kem heim á klakann, var að fá sent sms frá eiginmanninum, honum finnst svo gaman að senda mér sms með veðurupplýsingum ... hann veit þá hversu mikið ég kann að meta danska veðráttu :0) en í því stóð: "Norðan hvass, stórhríð, 4° í mínus" ojoojojojojbarasta. Ég kann því nokkuð vel að meta 8° og smá golu :0) þrátt fyrir að hafa blótað kuldanum rétt áður en sms-ið kom.
Gærdagurinn fór ekki í mikinn lestur ... var heldur framlág er ég vaknaði, held að bjórarnir hafi verið of margir á miðvikudagskvöldið :0) en við hér í Slömminu eigum ekki við neinn vandamál að stríða í sambandi við áfengisneyslu ... við drekkum ekki um helgar HAHAHAHAHAHA ekki það að ég sé sífellt á kránum en ég er í landi Margrétar og ég held svei mér þá að hún hafi gefið út einhversstaðar að þeir sem búa í hennar landi ættu að minnsta kosti að fara 1x í viku út á krá og fá sér einn eða tvo öl. Ég meina það verður að halda atvinnustarfsemi landsins við. Þið sjáið að ef enginn færi á krána myndi eigandi kráarinnar fara á hausinn, segjum að hann eigi stóra fjölskyldu og ef hann missti lífsviðurværi sitt fengju börnin hans ekki það sem þau þyrftu, svo ef að ölsala drægist saman þá myndu ölgerðarmenn í DK missa vinnuna sína og ég tala nú ekki um þegar þetta er farið að teygja anga sína út í heiminn. Hugsið ykkur alla ölgerðarmennina í UK sem myndu missa yfirvinnuna sína ef ég hætti að drekka Guinness hahahah ok þetta er að verða komið gott af réttlætingu ... farið að þynnast örlítið.
Hitti Lalla Johns Danmerkur í vikunni, hann var ásamt vinum að taka strætó eins og ég. Hann byrjaði að tala við mig, frekar óskiljanlegur (okey ég er ekkert spes í dönsku en betri ef sá sem ég tala við er ekki drafandi af frekar mikilli áfengisneyslu og örugglega einhverri annarri neyslu :0) ég bað hann að tala aðeins hægar og hann, ásamt vinum sínum tveimur fóru í það að giska á það hvaðan ég væri. Búið var að nefna t.d. Noreg, Svíþjóð og Finnland en svo sagði einn með angurværan svip: "Du kommer frå Island, ligesom min trøje." HAHAHAHHA hann var í svona flottri ullarpeysu sem var al íslensk að uppruna. Ég grínaðist við hann og hélt nú að hann gæti talað íslensku fyrst hann væri í íslenskri ullarpeysu hahahahah en nei hann gat það nú ekki ... var þetta til of mikils mælst?
Fór með systur á outlet markað í gær, frekar sjoppulegt umhverfi og föt en samt gaman ... fannst þetta nú ekki svo hrikalega ódýrt en auðvitað var nú einhver afsláttur. Fórum inn í aðra verslun sem var í sama húsi og haldið þið ekki að ég hafi fundið töskuna sem ég hef verið að svipastu um eftir. Fékk hana á 100 kall danskar, hef verið að skoða svipaðar töskur ... bara ekki eins flottar og gæðalegar á þrisvar sinnum hærra verði. Alltaf að græða :0) systir rökræðir gjarnan við hana Ráðhildi, sem er gps-leiðsögutækið. Hún er þó ekki farin að rífast við hana en við hlógum mikið að því að hún væri að segja t.d. bíddu af hverju lætur tækið okkur fara þessa leið? Þetta er mikið lengri leið heldur en hægt er að fara o.s.frv. HAHAHAHHHAHAHAH
Jæja, nú ætla ég að girða í brók og fara að lesa. Hafdís, sambýliskonan mín á afmæli í dag og það verður eitthvað hopp og hí í tilefni dagsins. Farið út að borða og í keilu, stormað svo á Janusargötuna og fengið sér einn eða tvo öl ... þrátt fyrir að það sé Föstudagur :0) en Þriðjudagar eru hinir nýju Föstudagar hér í Slömminu og Miðvikudagar jafnvel líka þannig að Föstudagar hljóta því að vera Mánudagar eða Þriðjudagar ef ég tel rétt hahahahaha ok ekki reyna að hugsa þetta rökrétt
Hilsen heim,
Jóa Slömm
Hellú alles
Mikið svakalega var ég glöð að sjá kommentin á síðunni minni, þau fengu mig hreinlega til að langa að skrifa meira hahahaha
Lenti fyrir stórundarlegu í dag. En það er smá undanfari fyrir þessu merkilega. Málið er að ég er ekkert sérlega flínk í því að skipta um bleijur á börnum sem eru orðin það stór að það sem skilar sér í bleijuna er orðið eins og það best verður hjá fullorðnum. Ég er alveg flínk í að skipta um bleyjur ... held ég ... það er ótrúlega langt síðan síðast en samt held að þetta sé álíka og að hjóla. En anyways, ég umbreytist í einhverja ófreskju sem getur ekki haldið neinu niðri, ég kúast og kúast o.s.frv. En allavega ein lítil var í heimsókn á staðnum þar sem ég var í heimsókn á í dag og var hún að leika við næst yngsta heimilismeðliminn. Þau voru uppi að dunda sér og ég var niðri í eldhúsi, með litluna og sagði við systur: "Bíddu er hún búin að kúka?" og rétti fram afturenda prinsessunnar. Nei hún var ekki búin að því enda passaði lyktin eiginlega ekki við þetta litla skinn :0) þá sagði ég við systur: "það er einhver búinn að kúka á sig á efri hæðinni" ahahahha jú gesturinn hahahah og ég fann það niður á neðri hæðina. Jæja, ekki nóg með þetta og mitt ótrúlega nef. Ég var á leiðinni heim í Slömmið ... í strætó (hey þeir spáðu rigningu ... sem gekk náttúrulega eftir, alveg ótrúlegir þessir veðurspámenn hér í Danmörku. Ég fann þessa svaka brunalykt ... var ekki alveg sama en allir voru rólegir í businum þannig að ég reyndi að halda ró minni. Ég fann þessa lykt í töluvert langan tíma og viti menn, eftir mörg hundruð metra keyrðum við fram hjá Slökkviliðinu, það hafði kviknað í húsi. Hvað er í gangi með nefið á mér? Ég reyki en er samt svona ótrúlega lyktnæm!
Ég hef orðið fyrir mikilli uppgötvun, sú uppgötvun er Mindfulness sem eru meðferðaraðferðir fyrir margskonar kvilla, s.s. kvíða og til að fyrirbyggja "hrösun" hjá þunglyndissjúklingum, einnig meðferðarform sem hefur hjálpað OCD sjúklingum og fólki með Borderline disorder. Langar endalaust að læra meira um þetta, held að það sé algerlega svarið við streitufullu lífsmynstri sem við flestir alheimsbúar búum við og í. Læt ykkur vita meira af því síðar :0) Ætla samt ekki að drepa ykkur með einhverju skólatali hahahaha. Ennnnnn ég held að ég fari að leggja hausinn á koddann.
Skrifa fljótt aftur, vonandi eitthvað krassandi ahhahaha því það gerist alltaf eitthvað skemmtilegt í kringum mig :0) og slömmið
Hilsen heim úr landi Margrétar frænku
Jóa
Sæl öll
Ákvað að setja inn eina færslu, svona til að athuga hvort einhverjir skoða þetta :0) Ég verð satt best að segja ferlega löt þegar enginn kommentar þannig að ég þurfti að beita sjálfa mig hörðu til að kanna hvort einhver myndi kommenta á nýja færslu.
Það er margur munurinn á manneskjunum, þá meina ég ekki bara á milli íslendinga og dana heldur hreinlega persónumunur eins og við öll vitum. Samt er eitt stór merkilegt, það er að hér eru flestir mjög kurteisir t.d. í búðum. Þeir segja flestir eins og fyrirsögnin segir, kan jeg bede eða eitthvað svoleiðis, sem myndi þá útfærast sem má ég biðja um einn öl takk? Ég átti gott spjall við einn félaga úr kvíðatímunum. Við vorum eitthvað að ræða muninn á þjóðunum okkar, þ.e. Íslandi og Danmörku. Ég sagði við hann að ég væri mjög undrandi hversu góðir danir væru við að bíða í röðum. Engar hryndingar eða troðningur, hann sagði að það færi nú eftir því hvar maður væri :0) það væri mun meiri átroðningur og leiðindi í Kaupmannahöfn heldur en úti á landi og það væri einhvern veginn meiri samhugur í fólki "úti á landi". Ég fór að spá í þetta og held að það sé sama sagan heima á ísalandinu góða :0)
Við sem erum utan af landi erum oftar en ekki að ég tel (nú er þetta bara mín persónulega skoðun sko :0) mun meira líbó en þeir sem koma af stór Reykjavíkur svæðinu :0) svo keppast margir um að úthrópa okkur, þetta sveitapakk sem hálfvita og svo framvegis ahahahhaha Það er alveg ótrúlegt hversu margir eru með hroka, ok ég er ekki að binda þetta endilega við alla einstaklinga á Reykjavíkur svæðinu því fer fjarri. En við erum komin svo langt frá okkur sjálfum. Eiginhagsmunasemi og kapphlaup við allt og alla :0) Kannski að við ættum að nýta okkur kreppuna til góðs. Þá meina ég að tengjast okkur sjálfum aðeins aftur. Fara að bjóða góðan dag, bjóða þeim sem stendur á eftir okkur í röðinni á búðarkassanum að fara fram fyrir því sá einstaklingur er aðeins með tvo hluti en við erum með fulla kerru. Jafnvel að brosa til fólks sem við þekkjum ekki neitt, því eitt bros getur bjargað deginum fyrir einstaklinga sem eiga bágt eða erfitt. Svona mætti lengi telja en ég hef ákveðið að láta hér staðar numið. Var að hugsa um að vera pirruð út í fólkið á næstu hæð fyrir ofan mig. Það eru einhverjar svaka breytingar í gangi hjá þeim, hamarshögg og borvélahljóð. En ég sem sagt ákvað að vera ekki pirruð (þrátt fyrir að vera að lesa) heldur vera ánægð með að þau eru ekki að gera þetta á kvöldin hahahahah og ég ætti að vera ánægð með þetta því ég gæti hreinlega tekið mér pásu og farið út að hjóla í einhverja stund.
Yfir og út úr landi Margrétar, sem er óðum að taka stakkaskiptum. Reyndar framundan kuldakast og rigning, þá er bara betra að geta setið heima og lesið í bókarskræðunum :0)
Hilsen Jóa
Komið sæl og blessuð
Kom heim kl. 01:40 í nótt. Fór í heimsókn til Elle og (H)jelte á jósku heiðarnar. Það var mjög skemmtileg ferð og ekki skemmdi fyrir að Stína og Örninn voru einnig á svæðinu :0) ég hafði ætlað að fara fyrr, lofaði frú Elle að gera við fatalarfa og stóð við það ... nema hvað :0) ég og saumavélar eigum í ástarsambandi ... NOT en ég held að ég hafi klórað mig ágætlega út úr þessu verkefni.
Fórum einnig til Billund að heimsækja Fanney og Ágúst, voða gaman að hitta svona íslendinga :0) fórum svo út að borða á Jenses Böffhouse (með danska öinu) í Herning og ég hélt að ég myndi deyja á eftir. Ég held að ég hafi borðað meira frá því ég kom til Elle og co og þar til ég kom heim á Janusargötuna heldur en í 6 daga þar áður (vá flókin setning). Þegar ég fór í lestina frá Herning klukkan miðnætti hlakkaði ég rosalega til að glugga í bókin sem ég fékk lánaða hjá Elle sem heitir Meltingarvegurinn og geðheilsan. En lenti þá á tali við einn ferlega næs ungan mann, sem var með lífspekina á hreinu :0) hefur búið í DK í 9 ár en var á vergangi með fjölskyldu sinni milli margra landa þar áður. Er upprunalega frá Afganistan en bjó svo m.a. í Ungverjalandi og Rúmeníu áður en hann kom hingað. Þetta er atvinnuboxari í pásu, þar sem það er svo mikil streita í skólanum hahahah hans orð en hefur komist langt í boxinu og ætlar sér lengra :0) æji hann var bara krútt. Hitti annan dana í lestinni, hann var ekki eins mikið krútt þar sem hann rétt gat setið í sætinu og lyft bjórnum ... og hitt í munninn. Hann var augafullur hahahaha og vildi vita allt um Ísland þegar ég var búin að segja honum að ég væri þaðan ... shit maður, hélt að ég myndi aldrei losna frá dananum fulla til að lesa.
En það er ferlega margt sniðugt í þessari bók og gaman að lesa hana, veit nú ekki hvort ég muni nota hana sem Biblíu en mjög áhugaverð tengsl sem þessi kona er að benda á, t.d. á milli mataræðis og þarmaflóru og ofvirkni nú eða einhverfu. Enn ég má bara lesa þessa afþreyingu á kvöldin áður en ég fer að sofa, skólabækur og greinar verða að vera í algerum forgangi nú sem endra nær :0) hahahaha
Jæja, nú ætla ég að hætta
Hilsen hjem til Island
Jóa (hahaha eða eins og Danir segja Johane
Komið sæl og blessuð
Það var mjög athyglisvert veður hér í Danaveldi í gær ... allavega í Árósum og það í "Slömminu". Morguninn byrjaði með rigningu og örlitlu roki, samt ekkert kalt í raun og veru en smá "chill" í honum samt. Svo kom aðeins meiri rigning en svo brast á með sól. Þegar hér var komið sögu þá var ég á leiðinni upp í skóla á honum Grámanni mínum, hann stóð sig eins og hetja (hjólhesturinn). Ég kom móð og másandi upp í skóla kl. 09:30 og ætlaði að hitta studievejlederen eða hvað sem þetta nú heitir. Nei, þá var hún með símatíma frá kl. 09-12, eigum við að tala um það? Nei, ég hélt ekki, vera með símatíma fimm daga vikunnar í þrjá tíma á dag ... það er of mikið. Jæja, ég hjólaði aftur heim í þessari líka blíðu. Þegar ég var komin heim og búin að læra um stund byrjaði að rigna aftur og svo kom aftur sól, þess á milli kom aðeins meiri vindur.
Ég hjólaði svo aftur upp í skóla og var komin þangað kl. 13. Þegar ég var rétt komin inn þá byrjaði að rigna en ekkert að gagni en svo brast á með hagléli!!! Hvað er það hér í Árósarborg? Þegar haglið hafði sungið sitt síðast byrjaði svoleiðis að hellirigna að ég var biðinni fegin, þ.e. ég þurfti að bíða í 45 mínútur eftir konunni, talaði svo við hana í 9 mínútur :0)
Ég hjólaði síðan heim í þessari svaka blíðu, pollarnir á hjólastígunum settu mig í þokkalega sturtu og allir alsælir ... not. Það virðist nefnilega vera svo hér að ekki er "inn" að vera með almennilegar aurhlífar á hjólunum, allavega ekki nægilega stóra þannig að ef maður hjólar fyrir aftan suma þá er maður í flottri úðasturtu :0)
Annars er ég svolítið hissa á þessari hjólaþjóð. Hjólastígarnir sem ég nota hvað mest eru allir í hólum og hæðum. Greinilega ekki mikil vinna lögð í undirlag þessara stíga, rætur trjánna sem umlykja götur og stíga reyna að brjótast upp á yfirborðið með þeim afleiðingum að sprungur myndast :0) ég er svo sem ekkert að kvarta þar sem við eigum ekki einu sinni svona stíga heima á Akureyri, í skurðinum :0) Vildi að eitthvað yrði gert til þess að maður gæti með góðu þeyst um á hjólinu ... ég ætla samt að flytja Grámann með mér heim og það skal vera þeyst á götum bæjarins.
Svo búið ykkur undir það ökumenn ... ég hjóla á götunni er heim kemur :0) og ég ætlast til að það verði tekið tillit til mín hahahahahhahahahahahaha og ég ekki keyrð niður á öðru hverju horni.
Hilsen heim
Jóa
Sæl verið þið
Mátti til að setja inn eina stutta færslu, svona fræðslufærslu (aðallega þó og mestmegnis vegna þess að ég á að vera mjög niðursokkin í undirbúningi og uppsetningu á fyrirlestri um Flemsturröskun með víðáttufælni).
Dúfur eru ekki svo friðsælar skepnur. Ef einhver hefur haldið að dúfur hefðu aðeins verið skapaðar sem þjónar fyrir mannfólkið hér á árum og öldum áður þá veður sá hinn sami í villu og svíma. Dúfur eru ekki til neins nytsamlegar, nema það teljist kostur að orga og garga, drulla og slást í garðinum mínum.
Þessi óbermi, drulla á nýju fínu (og mjög svo illa smíðuðu og uppsettu) svalirnar mínar. Þær orga og garga frá morgni til kvölds (sem betur fer þegja þær á næturna) og slást eins og enginn sé morgundagurinn þess á milli. Ég viðurkenni fúslega að ég er hætt að vakna við þær eldsnemma á morgnanna en það tekur ekki af þeim þá staðreynd að þær geta ekki haldið gogg. Og hefur enginn sagt þeim að öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir? Ég hef reynt að gefa þeim það til kynna en ég virðist vera nægilega skrýtin nú þegar þó ég fari ekki að tala við óhræsin. Ég virka nefnilega örugglega smá skrýtin, því ég fer alltaf út til að reykja. Danir virðast nefnilega ekki fara út til að reykja, heldur svæla inni en sumir virðast þó opna glugga, þó virðist það vera undantekning allavega í mínum garði.
Ég bý nefnilega í "Slömminu" (eins og mágur segir) og þar eru fáar barnafjölskyldur (allavega virka daga, ja fyrir utan þessi nýfæddu krýli sem ætla allt að æra eldsnemma á morgnanna ahahhahaha æj grey skinnin) og ætla ég að vona að Danir séu búnir að átta sig á því að óbeinar reykingar séu eins slæmar og beinar reykingar og reyki því ekki yfir börnum sínum. Annars bjóst ég við enn meiri reykingum hér í Danaveldi. Í skóla lærði maður að allir reyktu í Danmörku, frá 10 ára aldri og upp úr hahahahaha en því fer öðru nær, því mikil vakning hefur orðið hér eins og annarsstaðar í heiminum um skaðsemina (ok, já ég veit, verð að fara að hætta þessum ósóma).
Ég ætla að hætta núna, er komin út á ís sem er örþunnur og betra að hætta áður en ég lofa einhverju upp í ermina á mér. Hef reynt að setjast niður og hugsa um eitthvað annað þegar ég fæ þá flugu í höfuðið að kannski sé best að hætta, ákveða tíma og kýla á það :0)
Jæja, þá er að halda áfram við að undirbúa fyrirlestur með lestri
Hilsen heim
Jóa
Komið sæl og blessuð
Héðan úr Möggulandi er allt gott að frétta. TT lagði af stað heim á klakann síðasta miðvikudag, mér fannst það óþarfi en hann hélt því fram að inn kæmu engir peningar á meðan hann mældi göturnar hér frítt. Talandi um að mæla göturnar, ég hélt að ég væri búin að gera út af við manninn minn. Ég veit að hann er orðinn 50 ára blessaður en hann er nú vanur að mæla gólfin aftur og fram í Hofinu þegar hann er í vinnunni. En til að gera söguna góða þá var hann kominn með gangverk í fæturna :0) bara vegna þess að konan hans lét hann arka svo hratt um götur Árósa. Hann hélt ítrekað að ég væri orðin of sein eitthvert :0) en svona er þetta, ég er vön að nota labbið (og náttúrulega hjólið) til að koma mér frá stað  A til B og er ekkert að fara þetta í rólegheitunum.
Við hjónakornin notuðumst nú einnig við strætóana hér í borg. Fórum til að mynda þrisvar sinnum í Bilka :0) ok ég elska Bilka og held að ég hafi náð að smita manninn minn. Þetta er mín uppáhaldsbúð ... reyndar ekki farið svo mikið í aðrar, ja nema matarbúðirnar hér í kring. Hann keypti sér tangir, hahaha já segi og skrifa það tangir! Þetta voru svona extra litlar tangir (ferlega krúttlegar) sem opna sig sjálfar, þannig að betra verður að taka niður úti-jólaseríurnar. Við keyptum líka jólaborða (er ekki í lagi með okkur?), sem við ætlum að nota til að setja í jólakúlurnar okkar í stofugluggann.
Já ég fór að tala um strætó í einum tilgangi. Eins og flestir vita sem hafa verið að lesa þessi skrif mín hér þá lendi ég mjög oft í einhverjum ævintýrum í strætó. Síðasta vika var engin undartekning :0) fórum að kveðja systur og fjölskylduna og fórum heim með vagninum. Það var ferlega flott kerla að keyra og ég held svei mér þá að ég hafi aldrei verið í vagni sem keyrði eins vel :0) í alvöru. Hún keyrði ekki upp á alla kantsteina sem voru á leiðinni, hún var heldur ekki í því að þenja vagninn eins og hann dró og snarstoppa svo á næstu stoppistöð. Nei hún hélt bara sínum tíma og var algerlega á réttum tíma. Nema hvað, þegar við komum niður á Park Allé, þá var vaktin hennar greinilega búin og annar vagnstjóri tók við. Ég gat ekki testað á aksturshæfileikum hans þar sem vagninn dó. Já hann dó í orðsins fyllstu merkingu :0) við ákváðum að fara út og labba heim (sem er ekki nema ca. 7 mín. gangur) og áður en við vorum komin úr augsýn þá var vagninn enn steinstopp :0)
Jæja, nú er um að gera að fara að snúa sér að lestri námsbóka. Var að komast að því að ég má ekki taka bæði valfögin núna sem ég er í. Frábært að vera skráð í þau og svo þegar mikið er búið af skólanum að komast að því að þetta er ekki leyfilegt. Þannig að ég þarf að taka vinnu- og skipulags sálfræði í staðinn. Ég hata A&U eða Vinnu og skipulagssálfræði :0) en sem betur fer er örlítið minna lesefni þar en í þessum valfögum svo ég á mér einhverja von um að ná að lesa mig upp í því. Svo þurfti ég að taka ákvörðun um hvort valfagið ég myndi halda áfram í, það var öllu erfiðara en að fara á klósettið get ég sagt ykkur. Úr varð að ég ákvað að kvíðanámskeiðið yrði setið, ég hef svo mikinn áhuga á ADHD dótinu að ég kem til með að lesa það bara sjálf :0)
Hilsen heim á klakann, frétti af miklum snjó og leiðinda veðri. Hér eru tré og runnar farin að bruma og vorlaukarnir að spretta upp (okey, sá það bara á einum stað hahahah þ.e.a.s. blómin)
Jóa
p.s. takk fyrir allar kveðjurnar í tilefni hálfrar aldar afmælis TT hahahahahahha við metum það mikils.
p.p.s. bara segja ykkur að það er greinilega fætt annað barn hér í Janusargötuni sem orgar daga og nætur, svo hátt að það glymur í bakgarðinum mínum hahahahahah. Þegar barnið á móti hætti að garga svona kom bara annað! Alveg glimrandi hahahahahah ef þetta ætti ekki að vera getnaðarvörn fyrir unga dani (og aðra líka) þá veit ég ekki hvað :0)
Hæ alles
Héðan er allt gott að frétta. Eitt ár skellist á TT  kl. 12:53 ... bara gaman að því hahahahahah
Ég á eftir að koma með ýtarlega færslu um niðurstöður óformlegra rannsókna sem ég hef verið að dunda mér við að koma saman hahaha, t.d. í sambandi við þversögn slæðukvenna, fótaburð danskra kvenna, snípupils, neyslusamfélagið Danmörk og fleira
Hilsen heim, ætlum að skreppa út og athuga hvort við finnum ekki eitthvað sniðugt að versla múhahaha
Hilsen heim
Jóa